Kraftur - teningar

"Leynivopnið" í marga pottrétti og súpur, sem kannski þurfa bara "smáskot" til að lyftast í hæstu hæðir matargerðarlistarinnar. Prófaðu hálfan tening í pottréttinn eða í sósuna. Þetta er það sem kokkarnir gera ef sósan gerir sig ekki alveg nógu vel svo þú skalt bara gera það líka – en uss... ekki segja neinum. Því þá fara allir að apa eftir og geta allt í einu búið til þessar fínu sósur og þá er úti um "sósusérfræðing" fjölskyldunnar.