Saga Knorr

1800
Carl Heinrich Knorr fæðist 15. maí, í bænum Meerdorf í Þýskalandi.

1838
Vörumerkið KNORR verður til þegar Carl Heinrich Knorr byggir verksmiðju í Heilbronn í Þýskalandi. Verksmiðjan þurrkar og malar kaffifífil (sikoríu) fyrir kaffiverksmiðjur um allan heim (í kaffibæti).

1870
Synir C.H. Knorr byrja að vinna í fyrirtækinu. Þeir hefja tilraunir með að þurrka grænmeti og kryddjurtir og nota síðan í súpur.

1873
KNORR byrjar að selja þurrkaðar súpur.

1875
Carl Heinrich Knorr deyr.

1885
KNORR víkkar út starfsemina með verksmiðjum í Austurríki og Sviss. Á þessum tíma býður KNORR fjölbreytt vöruúrval, þar á meðal kornmeti, grænmeti, kartöfluflögur og vöru sem þótti mikið hagræði að; súpu sem var þurrkuð og þjappað saman í töfluform. 

1889
KNORR kynnir ”Erbswurst”, aðra skyndivöru. Þetta er kryddað baunasúpuþykkni sem er pakkað í pylsubelg. ”Súpupylsuna” má borða þurra en oftast er hún sett í sjóðandi vatn og gerð úr henni súpa. Varan varð mjög vinsæl því hún var svo létt og auðvelt að tilreiða hana. Árið 1900 fengust 40 tegundir af ”súpupylsunni".

1899
C.H. KNORR A.G. verður hlutafélag með 800 starfsmönnum.

1908
KNORR verður fyrst fyrirtækja í Evrópu til að bjóða pakkasósur.

1912
Súputeningurinn kemur fram!

1947
Á árunum eftir stríð eykst mjög eftirspurnin eftir KNORR-vörum og það kemur niður á gæðunum. Þetta leiðir til þess að árið 1947 rambar KNORR á barmi gjaldþrots. KNORR markar sér því nýja stefnu til að rétta við hag fyrirtækisins: ”Aðeins veruleg áhersla á gæði og hóflegt verð ásamt þróun nýrra vörutegunda skilar langtíma velgengni."

1948
Önnur ástæða þess að fyrirtækinu tekst að verjast gjaldþroti er að í stað fljótandi brúna bragðefnisins sem hefur verið notað kemur glútamat. Við það hverfur ”verksmiðjubragðið” og KNORR-súpan fer að geta keppt fyrir alvöru  við heimatilbúnar súpur. Einnig koma loftþéttar álumbúðir í stað pappírsumbúða. Eftir þessar breytingar kemur ”kjúklinga- og núðlusúpan” á markaðinn og slær í gegn. Fyrstu sjö mánuðina seljast 6,4 milljónir skammta.

1953 
AROMAT-kryddið kemur á markað. 

1958
KNORR GmbH rennur 100% saman við CPC International Inc., sem síðan skiptir um heiti og verður Bestfoods. 

2000
KNORR hefur breikkað vöruúrvalið verulega og selur nú vörur sínar í 87 löndum um allan heim. Í október eignast Unilever KNORR-merkið.

2004
Þrátt fyrir allar þær breytingar sem hafa orðið í áranna rás byggir Knorr framleiðslu sína enn á hefðbundnum og faglegum vinnubrögðum og innsýn í smekk og matarhefðir ólíkra þjóða. Frá Heilbronn-verksmiðjunni héldu synir stofnanda Knorr út í heim í leit að hugmyndum og urðu þannig upphafsmenn stöðugrar nýsköpunar í alþjóðaumhverfi Knorr. Enn í dag er Heilbronn-verksmiðjan lífæðin í menningu Knorr og stöðugri leit að frumlegum lausnum. Tuttugu og eitt matreiðslumeistara frá 9 löndum tryggja að góður matur verður áfram efst á stefnuskránni. Frækin fortíð Knorr og liðsinni frábærra matreiðslumanna víðs vegar að úr heiminum gerir það að verkum að traustar hefðir og vinnubrögð handverksmannsins geta kallast "erfðaefni" Knorr.  

2005
Knorr í Danmörku skiptir um útlit! Knorr ”átti” eiginlega rauða litinn en vill nú skipta yfir í grænt – lit ferskleika og lífsorku! Auk þess vill Knorr gjarnan gefa neytandanum góðar hugmyndir í formi ábendinga aftan á pökkunum! Knorr vill tryggja ánægjulega upplifun, örva þig til að prófa nýjungar í mat og gera þér kleift að fá "réttan" mat þrátt fyrir annir dagsins.