Ráðleggingar

Ferskt grænmeti eru lykilþættir í eldhúsinu – í bland við Knorr vörurnar gera þeir daglegar máltíðir töfrandi. En hvernig veistu hvort grænmeti sé ferskt?

Ferskleikapróf
Ferskt grænmeti eru lykilþættir í eldhúsinu – í bland við Knorr vörurnar gera þeir daglegar máltíðir töfrandi.
 
Þeir bragðast ekki bara vel, heldur eru einnig hollur kostur. Þeir eru uppfullir af vítamínum, steinefnum og trefjum, og hafa lágt fitu- og kalóríuhlutfall. Regluleg neysla grænmetis mun bæta lundarfar þitt og gefa þér mikla orku.
 
En hvernig veistu hvort grænmeti sé ferskt? Notaðu þessar ráðleggingar hér að neðan til að komast að því:
 
Aspas
Leitaðu að beinum, stinnum stilkum með toppana lokaða. Reyndu að kaupa búnt af aspas sem er jafn þykkt, svo það eldist jafnt.
 
Eggaldinn
Ætti að vera þungur og glansandi, með dökk fjólubláan lit.
 
Gulrætur
Ættu að vera litlar, skær appelsínugular og sléttar.
 
Hvítkál
Ætti að vera stíft og þétt. Hafðu augun opinn eftir litlum holum – gæti verið ormétið.
 
Hvítlaukur
Ysti hlutinn ætti að vera þurr. Hvítlauksrifin ættu að vera stinn.
 
Kartöflur
Ættu að vera stinnar og sléttar – engin drulla, rispur eða spírur.
 
Kúrbítur
Ætti að vera lítill og stinnur, án mjúkra bletta
 
Laukur
Ætti að vera stinnur og þurr með slétt yfirborð
 
Paprika
Yfirborðið ætti að vera slétt og stíft.
 
Rauðrófa
Ætti að vera rauð-fjólublár á litinn og með óklofið yfirborð
 
Rósakál
Ættu að vera stinnt og dökk grænt
 
Sellerí
Ætti að vera stökkt og ljós grænt
 
Spergilkál
Litlu “tréin” ættu að vera dökk græn. Skoðaðu stilkinn og vertu viss um að hann sé ekki harður.
 
Spínat
Laufin ættu að vera hrein og stökk – ekki visin eða gulleit.
 
Sveppir
Ættu að vera hreinir og stinnir.
 
Tómatar
Ættu að vera bústnir og sléttir – án mjúkra bletta.